Aðalskoðun er ástandsskoðun sem ætlað er að gera heildarúttekt á öryggi einstakra leikvallatækja og leiksvæðis í heild. Við aðalskoðun er unnið eftir stöðlunum ÍST EN 1176, ÍST EN 1177 og reglugerð nr. 942/2002. Aðalskoðun gildir um öll leiksvæði, hvort sem er innan dyra eða utan, skipulagt fyrir leik barna svo sem í eða við leikskóla, skóla, gæsluvelli og opin leiksvæði. Framkvæmd skoðunar er gerð í samráði við eiganda. Að skoðun lokinni er gerð skýrsla þar sem fram kemur ástand einstakra leikvallatækja, fallundirlags, annarra yfirborðsefna, svæðisins í heild og áhættumat. Út frá niðurstöðum skýrslunnar á viðskiptavinur að forgangsraða úrbótum. BSI á Íslandi sér um halda utan um skrá yfir leiktæki, myndir af vettvangi og gera skil á gögnum til verkkaupa á rafrænu formi. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband við okkur í síma 414 4444.
|
|
|