CE merkingar með aðstoð sérfræðinga BSI
Vörur sem eru seldar innan evrópska efnahagssvæðisins falla margar hverjar undir tilskipanir (nýaðferðatilskipanir) Evrópusambandsins og verða því að hafa CE – merkingu. Leiðin að CE merkingu getur virkað flókin og torsótt þar sem skilyrði fyrir CE vottun eru mismunandi eftir reglugerðum. Ein vara getur t.d. fallið undir margar reglugerðir og því er oft erfitt að gera sér grein fyrir kröfum til hennar.
BSI hefur stöðu „tilkynnts aðila” (Notified Body) fyrir fjölda nýaðferðatilskipana Evrópusambandsins og getur boðið upp á yfirgripsmikla sérfræðiþekkingu og þjónustu sem miðar að því að hjálpa viðskiptavinum að skilja betur ferlið og einfalda leiðina að lögbundinni CE merkingu.
Þarftu aðstoð við CE merkingar?
Hafðu þá samband við skrifstofu okkar í síma 414-4444 eða sendu okkur póst. Við höfum sérþekkingu á kröfum um CE merkingar.
- Kannaðu hvað við getum gert fyrir þig. -
|