BSI á Íslandi

Forsíða Áhættumat Árleg aðalskoðun leiksvæða

Ef þú ert rekstraraðili leikskóla eða leiksvæða ber þér að sjá til þess að skipulög leiksvæði séu skoðuð árlega samkvæmt kröfum um aðalskoðanir leiksvæða.Reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim gildir fyrir öll leiksvæði innan dyra sem utan, skipulögð fyrir leik barna svo sem skólalóðir, gæsluvelli, opin leiksvæði, lóðir fjölbýlishúsa og svæði þar sem börn eiga greiðan aðgang að.

 Í hverju fellst aðalskoðun leiksvæða? 

Aðalskoðun er ástandsskoðun þar sem gerð er heildarúttekt á öryggi leikvallatækja, yfirborðsefna og á leiksvæðinu öllu.

BSI á Íslandi hlaut faggildingu á þessu sviði fyrst fyrirtækja frá Neytendastofu á árinu 2005 og hefur ávallt sérfræðinga á þessu sviði.

Við höfum framkvæmt yfir 1000 aðalskoðanir á leiksvæðum og starfsfólk okkar með mikla reynslu á þessu sviði.

Nánari upplýsingar í síma 414-4444.

Reglugerð nr. 607/2005 um breytingu á reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða.

Reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.