|

Í umboði Bílgreinasambandsins sér BSI á Íslandi um úttektir á stjórnkerfum bílaverkstæða samkvæmt kröfum BGS staðals útgáfu 3:2011.
Markmið vottunar samkvæmt staðlinum er:
- Að auka gæði þjónustu hjá bifreiðaverkstæðum, málningar-og réttingarverkstæðum og söluaðilum notaðra varahluta.
- Að samræma kröfur í staðlinum við kröfur í ISO 9001 og nýlegum stöðlum um gæði verkstæðisþjónustu.
- Að BGS vottun verkstæða sé áþreifanleg sönnun um gæði þjónustu.
BSG Staðall Útgáfa 3:2011 Staðlinum er dreift án endurgjalds. Hafið samband við BSI á Íslandi með því að velja tenginguna neðar á síðunni. BSI sendir eintak af staðlinum um hæl.
Námskeið í boði:
Námskeið fyrir BGS innleiðingu á BGS staðalinum eru nú í boði hjá IÐUNI Fræðslusetri.
|