|
Í september 2009 gaf Brunamálastofnun út starfsleyfi til handa BSI á Íslandi ehf til reksturs skoðunarstofu á rafmagnssviði. Við höfum ráðið til okkar öfluga skoðunarmenn sem munu byggja upp starfsemi fyrirtækisins á þessu sviði. Guðbrandur Guðmundsson rafmagnsverkfræðingur er tæknilegur stjórnandi rafmangsskoðunarsviðs. Sigmundur Þórisson iðnfræðingur er skoðunarmaður staðsettur á Akureyri. Hann hefur á sínum starfsferli öðlast mikla reynslu af rafmagnsöryggismálum. Hann veitti skrifstofu Rafmagnseftirlitsins á Akureyri forstöðu um árabil og sinnti þá eftirlit í háspennuvirkjum. Sigmundur tekur á móti pöntunum í síma 893-0530. Netfangið hjá Sigmundi er sigmundur(hjá)bsiaislandi.is Starfsleyfi okkar nær til allra þátta rafskoðunar en þeir eru:
Við tökum að okkur úttektir og skoðanir á rafmagnssviði allstaðar á landinu á samkeppnishæfu verði. Hafðu samband við skrifstofu okkar í síma 414-4444 eða beint við skoðunarmenn í GSM. |