|
BSI er leiðandi aðili í faggildri vottun á stjórnkerfum samkvæmt ISO stöðlum og öðrum alþjóðlega viðurkenndum stöðlum. Yfir 80.000 viðskiptavinir víðsvegar um heiminn eru til marks um það. Má þar nefna vottun á ISO 9001 gæðastjórnunarkerfum, ISO 14001 umhverfis-stjórnunarkerfum, ISO 27001 stjórnkerfum fyrir upplýsingaöryggi, OHSAS 18001 öryggis- og vinnuumhverfisstjórnunarkerfum, ISO 13485 stjórnunarkerfi fyrir lækningatæki og TL 9000 gæðastjórnunarkerfi fyrir fjarskiptafyrirtæki. Vegna alþjóðlegrar starfssemi hefur BSI á að skipa hópi sérfræðinga á mörgum sviðum varðandi faggildar vottanir. Hafðu samband á skrifstofu okkar fyrir nánari upplýsingar um vottun stjórnkerfa. Lesa nánar > Leiðin að vottun |